Lokun á innskráningu

Ekki er lengur hægt að skrá sig inn á Stöff með rafrænum skilríkjum.

Ástæðan er sú að Ísland.is hefur lokað fyrir innskráningarþjónustuna sem er í notkun á Stöff og það er of kostnaðarsamt fyrir okkur á þessum tímapunkti að innleiða nýja innskráningarþjónustu með rafrænum skilríkjum sem er í boði. Því þurfa notendur að nota notendanafn og lykilorð til að skrá sig inn héðan í frá.

Þeir notendur sem hafa aðeins notað rafræn skilríki til innskráningar hingað til geta búið til nýtt lykilorð með því að smella á “Gleymt lykilorð” í innskráningar glugganum og fylgja leiðbeiningum sem koma í tölvupóstinum.